UPPSETNINGARLEIÐBEININGAR STANDARD ALMENNAR UPPLÝSINGAR Þessar uppsetningar- og notkunarleiðbeiningar innihalda allar nauðsynlegar upplýsingar um rétta og örugga notkun, uppsetningu, rekstur og viðhald á markísunni. Til að forðast mistök og hættu skaltu lesa leiðbeiningarnar rækilega og fara eftir þeim. Leiðbeiningarnar eru fyrir notendur markísunnar og eru þær samþættur hluti af markísunni. Þær verður að geyma og grípa í þegar þess er þörf allan endingartíma markísunnar (þangað til að henni er fargað). Notkunarleiðbeiningarnar eiga aðeins við um ef markísan þín er í samræmi við það ástand sem lýst er í þessum notkunarleiðbeiningum. Allar stærðir og teikningar í þessum leiðbeiningum eru ráðgefandi. Fyrir nákvæma mælingu fyrir uppsetningu er mælt með því að mælingar séu gerðar beint á markísuna. Ef upp kemur galli eða þörf er á viðgerð, sem ekki er lýst í leiðbeiningunum, skaltu hafa samband við söluaðila eða fagaðila. Vel að merkja. Fyrir utan almennt viðhald verður öll þjónusta að vera framkvæmd af viðurkenndum markísufagaðila/uppsetningaraðila*. Ef þjónustu- og viðgerðarvinna er vanrækt eða ekki útfærð á faglegan réttan hátt, fellur kvörtunarréttur niður. *Markísufagaðili/uppsetningaraðili hefur færni í uppsetningu og viðgerð á öllum gerðum markísa, þar á meðal markísa með felliarmi, markísa með brotarmi, tjöld, pall- og svalamarkísur og verslunarmarkísur. Fagmaðurinn þekkir allar hættur sem tengdar eru uppsetningu og þjónustu markísunnar. Eina viðhaldið sem þú mátt framkvæma er: > Stilling á markísunni (sjá blaðsíðu 14). > Stilling á halla markísunnar (sjá blaðsíðu 15). > Smurning á hreyfanlegum hluti bortarmsins með nokkrum dropum af sýrufrírri olíu, t.d. Perssol Syrefri. Sjá blaðsíðu 18 fyrir yfirlit yfir smurstaði. 2
Halið niður PDF-skjali